Ný heimasíða Grunnskóla Dalvíkurbyggðar

Grunnskóli Dalvíkurbyggðar hefur nú opnað nýja heimasíðu www.dalvik.is/grunnskoli og leysir hún af hólmi heimasíður Dalvíkurskóla og Árskógarskóla. Nýja heimasíðan hefur svipað útlit og www.dalvik.is og er það liður í því að fá heildarvefútlit fyrir allar stofnanir sveitarfélagsins. Við óskum Grunnskóla Dalvíkurbyggðar til hamingju með glæsilega heimasíðu og hvetjum alla til að skoða hana.