Ný heimasíða Golfklúbbsins Hamars

Golfklúbburinn Hamar hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni http://www.ghdgolf.net . Á síðunni er að finna ýmsar upplýsingar um klúbbinn og fréttir úr starfinu. Síðan er hugsuð sem vettvangur fyrir félagsmenn til að fylgjast með því sem er á döfinni og til að auka upplýsingaflæði frá stjórn klúbbsins til hins almenna félaga og einnig til að golfáhugamenn um land allt geti fylgst með því öfluga starfi sem fram fer hjá GHD. Golf er í mikilli sókn í Dalvíkurbyggð og er það von okkar að ný heimasíða styðji enn frekar við útbreiðslu golfsins og veki áhuga fólks á því að ganga í klúbbinn. Þá auðveldar hún fjölmiðlum aðgang að upplýsingum um það sem er að gerast hjá klúbbnum og stuðlar þannig að frekari kynningu á golfi í Dalvíkurbyggð.