Ný dagatöl fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð

Vakin er athygli á því að komin eru í notkun ný dagatöl fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt þeim er sorp tekið á þriðjudögum í Svarfaðardal, miðvikudögum á Árskógsströnd og fimmtudögum á Dalvík.

Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að moka frá sorpílátum eða koma þeim þannig fyrir að aðgengi að þeim sé gott.