Nóvemberspá veðurklúbbsins á Dalbæ

Veðurklúbburinn á Dalbæ hefur nú gefið út veðurspá sína fyrir nóvembermánuð.

Nóvembermánuður verður að líkindum sviðaður og október var. Umhleypingasamur og smá hríðarskot.
Svipaður áttir vestan og austan ganga á mis. Tungl sem kviknaði 26. október var vel tekið. Næstu tveimur tunglum verður eins vel tekið.

Föstudagstungl í nóvember og laugardagstungl í desember.

Fundarmenn vora mjög ánægðir með októberspána og jafnvel veturinn fram undan.

Fimmtán manns sátu fundinn og spáðu og spjölluðu.


Veðurklúbburinn á Dalbæ.