Notendastýrð persónuleg aðstoð - tilraunaverkefni

Byggðasamlag um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra auglýsir eftir þátttakendum í sérstakt þróunar- og tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) á þjónustusvæði byggðasamlagsins. Um er að ræða tveggja ára tilraunaverkefni en gert ráð fyrir að NPA verði lögbundin þjónusta árið 2014.

Boðið er upp á NPA til reynslu til samræmis við framtíðarsýn byggðasamlagsins í þjónustu við fatlað fólk en þar er lögð áhersla á að íbúar svæðisins sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi áhrif á eigið líf og hafi val um hvernig aðstoð sé háttað. Með því að gera samning um NPA fær notandi greiðslur í stað þjónustu, velur aðstoðarfólk, er verkstjórnandi, ákveður sjálfur hvað hann vill gera og hvernig aðstoðarfólk nýtist.


Unnið er að gerð reglna um tilraunaverkefnið í samræmi við handbók verkefnisstjórnar um NPA á landsvísu og leiðbeinandi reglur velferðarráðuneytisins og verða umsóknir afgreiddar þegar þær reglur hafa verið samþykktar og tekið gildi. Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða verður horft til fjölbreytni í vali á þátttakendum í verkefnið.

Í tilraunaverkefninu geta tekið þátt þeir sem eiga lögheimili í Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Sveitarfélaginu Skagafirði, Akrahreppi, Skagabyggð, Sveitarfélaginu Skagaströnd, Blönduósbæ, Húnavatnshreppi og Húnaþingi vestra og falla undir lög um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992 með síðari breytingum, eru á aldrinum 18-66 ára og þurfa daglega aðstoð. Foreldrar fatlaðra barna sem þurfa daglega aðstoð geta sótt um fyrir hönd barna sinna.


Umsóknarfrestur er til 7.september.

Umsóknareyðublað


Umsóknir skulu berast til viðkomandi félagsþjónustu en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.

Félagsþjónusta Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, sími 455 2400

Félags-og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi, sími 455 4100

Fjölskyldu- og þjónustusvið,félagsmál, Ráðhúsið, 550 Sauðárkóki, sími 455 6000

Félagsþjónusta Fjallabyggðar v/Siglufjarðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði, sími 464 9100

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsið, 620 Dalvík, sími 460 4900


Ítarefni
Handbók um NPA
Leiðbeinandi reglur velferðarráðuneytisins um NPA
Lög um málefni fatlaðs fólks með síðari breytingum nr. 59/1992
Lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr.88/2011
Reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu 1054/2010