Norrænir handverksdagar 2010


Norræna félagið á Akureyri mun í samstarfi við Handverkshátíðina að Hrafnagili og Menningarráð Eyþings standa fyrir Norrænum Handverksdögum dagana 10. – 12. ágúst.

Í ár höfum við fengið til liðs við okkur Hildi Rosenkjær og Svíana Kerstin Lindroth og Sune Oskarsson.

Á Norrænum handverksdögum verður boðið upp á eftirfarandi námskeið: 
-Gerð íláta úr næfur. Næfur eða birkibörkur hefur verið nýttur í nytjamuni um langan aldur, en við notum lýsingarorðið „næfurþunnt“ án þess að vita hvað það merkir.
-Tálgun ölhænu. Ölhæna er ílát sem öl/mjöður var drukkin úr hér áður fyrr.
-Flauelisskurður með perlusaumi eða snúrurlagningu. Þetta handverk þekkist víða og var notað til skreytingar t.d. á fatnaði langt aftur í aldir. Hér á landi var hann notaður til að skreyta kraga og boðungsborða faldbúningstreyjunnar á 18. og fram á 19. öld.

Sjá nánari upplýsingar í viðhengi eða farðu inn á www.handverkshatid.is.

Skráningar eru þegar hafnar á handverksdagar2010@gmail.com
Nánari upplýsingar um námskeiðin veitir Hadda í síma: 899 8770