Niðurgreiðsla á strætókorti fyrir nemendur

Á síðasta fundi fræðsluráðs Dalvíkurbyggðar var samþykkt að mánaðarkort, þriggja mánaðakort og níu mánaðakort hjá strætó á milli Akureyrar og Dalvíkur verði greidd niður um 30% fyrir nemendur 18 ára og eldri. Niðurgreiðslan á við um þá nemendur sem eru í fullu framhalds- og háskólanámi á Akureyri. Ekki verður greitt fyrir kort nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga enda kemur Dalvíkurbyggð að beinni niðugreiðslu á þeim ferðum.

Allar nánari upplýsingar um ferðir Strætó, tímatöflur, stoppistöðvar og fleira er að finna á heimasíu Strætó www.straeto.is