Nemendur og kennarar frá Hólaskóla láta hendur standa fram úr ermum á Húsabakka

Nemendur og kennarar frá Hólaskóla láta hendur standa fram úr ermum á Húsabakka

Nú stendur yfir námskeið í lagningu göngustíga  í Náttúrusetrinu á Húsabakka.  Yfir tugttugu nemendur víðs vegar að af landinu vinna ásamt þrem leiðbeinendum  hörðum höndum frá mánudegi fram á miðvikudag að því að leggja göngustíga frá skólanum niður í Friðlandið, smíða býr á læki, slétta úr þúfum, ræsa fram votlendi og annað sem gera þarf svo vegfarendur komist nokkurn veginn þurrum fótum um svæðið.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Náttúrusetursins og Hólaskóla og stunda nemendurnir flestir nám við skólann. Einnig  eru nokkrir heimamenn á námskeiðinu á vegum vinnuskólans og tæknideildar Dalvíkurbyggðar. Leiðbeinendur eru Kjartan Bollason kennari við Hólaskóla og Chas Goemans sem stjórnar sjálfboðaliðastarfi á vegum Umhverfisstofnunar.
Veðrið hefur leikið við þáttakendur en satt að segja var útlitið ekki gott þegar fyrstu gestirnir tíndust að á sunnudaginn. Ekki spillir að Sigurborg Snorradóttir dekrar við mannskapinn í mat og drykk.

 
Brúarsmíði yfir Sundskálalæk