Náttúrusjóður Pálma Jónssonar styrkir Náttúrusetrið

Náttúrusjóður Pálma Jónssonar styrkir Náttúrusetrið

Náttúrusetrið á Húsabakka fékk úthlutað 300 þúsund kr. úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups, sem veitt var úr í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær.   Umsóknir voru 175 en af þeim fengu 32 styrki, samtals að upphæð 25.960.000 kr. Styrkur Náttúrusetursins skal sérstaklega nýttur til náttúru-og umhverfisfræðslu fyrir börn.

 
Frá athöfninni í Iðnó í gær