Náttúrusetrið formlega stofnað

Náttúrusetur á Húsabakka var formlega stofnsett á fundi á Rimum í gær. Jafnhliða var sett á fót sjálfseignarstofnun um reksturinn en í henni eiga fjórir aðilar stofnhlut. Það eru: Hollvinafélag Húsabakka, Dalvíkurbyggð, KEA og Sparisjóður Svarfdæla. Í þriggja manna stjórn eiga sæti, Trausti Þórisson f.h. Hollvinafélagsins, Hildur Ösp Gilfadóttir f.h. Dalvíkurbyggðar og Haukur Snorrason f.h. KEA en varamenn eru Jónas Pétursson sparisjóðsstjóri og Jóhann Ólafsson bæjarfulltrúi í Dalvíkurbyggð.

Með náttúrsetrinu er hugmyndin að blása nýju lífi í skólahúsnæðið á Húsabakka sem hefur staðið vannýtt frá því  regluleg skólastarfsemi lagðist af árið 2005 og tengja það  Friðland Svarfdæla sem einnig hefur að mörgu leyti verið vannýtt auðlind í Svarfaðardal. Gert er ráð fyrir fjölþættri starfsemi við náttúrusetrið á þrem meginstoðum: Skólabúðir með áherslu á unhverfisfræðslu, og  umhverfisvernd. Fræðasetur með aðstöðu fyrir fræðimenn og háskólahópa og í þriðja lagi ferða og ráðstefnumiðstöð.

Undanfarið ár hefur verið unnið að undirbúningi  stofnunarinnar og lagður grunnur að starfseminni s.s. með átaki í málum  Friðlands Svarfdæla. gerð fræðimannsíbúðar, námsferðum fyrir skólahópa, fræðslufundum fyrir almenning,  tengingum við háskólastofnanir ofl.