Námskeið í stjórn og meðferð vinnuvéla

Námskeið í stjórn og meðferð vinnuvéla, s.s. lyftara með minna en 10 t lyftigetu, krana með allt að 18 tm lyftigetu, dráttarvéla með tækjabúnaði og minni jarðvinnuvéla, o.fl., verður haldið á Akureyri 14.-16. október. n.k. ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðsstaður: Skipagata 14, 4. hæð.
Námskeiðið er í þrjá heila daga og stendur frá kl. 09-16 alla dagana.
Námskeiðsgjald er 22.000 kr. og greiðist við upphaf námskeiðs.


Skráning og upplýsingar í síma 460 6800, milli kl. 09:00 og 16:00

Vinnueftirlit ríkisins