Námskeið í félagsmálafræðslu á Ólafsfirði 12.-13. nóvember

Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Ólafsfirði dagana 12.-13. nóvember í UÍÓ-húsinu.

Námskeiðið hefst klukkan 18 og stendur til 22 báða dagana.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum.

Skráning á námskeiðið er á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929 eða á Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is