Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. nóvember 2008

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og
æskulýðssamtaka:
1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar
viðburði, né ferðir hópa.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1.
nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef
Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.
Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð og umsóknarferlið er að finna á vef menntamálaráðuneytis.
Einnig veitir Pálína Kristín Garðarsdóttir upplýsingar í síma 545 9500 eða í tölvupósti á
palina.gardarsdottir@mrn.stjr.is
Menntamálaráðuneyti, 9. október 2008.
menntamálaráðuneyti.is