Næsta miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla

Næst síðasta miðvikudagsganga sumarsins verður að Skriðukotsvatni á morgun. Safnast verður saman í bíla á planinu norðan við Dalvíkurkirkju þaðan sem farið verður kl. 17:15. Gengið verður upp með Skriðukotslæknum frá hlaðinu á Hofsárkoti. Dóra Reimars mun leiða gönguna.