N4 Sjónvarp Norðurlands næst á Sjónvarpi Símans

Frá og með 30. september síðastliðnum næst N4 Sjónvarp Norðurlands á Sjónvarpi Símans á Rás 6. Áhorfendur þurfa einungis að slökkva og kveikja á tækinu frá Símanum og þá á N4 að koma sjálfkrafa inn. Við bjóðum nýja áhorfendur hjartanlega velkomna í hópinn.