Myndir frá Fiskideginum Mikla

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir myndum frá Íbúum eða gestum Dalvíkurbyggðar í kringum Fiskidaginn Mikla. Þær myndir sem við fáum munum við birta hér á síðunni www.dalvik.is undir nafni ljósmyndara og minnkaðar fyrir netið þannig að höfundarréttur sé betur varinn. Myndir skal senda á netfangið freyra@dalvik.is. Við biðjum um allar myndir sem lýsa þeirri gríðarlegu stemmningu sem var hér í Dalvíkurbyggð þessa daga kringum Fiskidaginn Mikla.
Einnig er vert að minnast á ljósmyndasamkeppni á vegum Fiskidagsins Mikla sem hægt er að finna hér.