Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnar til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar

Byggðastofnun hefur gengið frá styrkveitingum og hlutafjárframlögum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar 2008 og 2009.
Alls voru 200 milljónir króna til úthlutunar, 100 milljónir fyrir hvort ár. Alls bárust 253 umsóknir samtals að fjárhæð 1.528. mkr. Alls hlutu 69 verkefni styrk.  Nokkrar umsóknir eru til frekari skoðunar.
Þrjú fyrirtæki í Dalvíkurbyggð fengu styrk, en þau eru:
Artex ehf. Markaðssetning afþreyingar á Árskógsströnd, kr. 1.000.000
Norðurströnd ehf. Vöruþróun á snakki úr fiskroði, kr. 3.000.000
Ektaréttir ehf. Vöruþróun og markaðssetning á fiskréttum, kr. 1.800.000
Hæstu styrkina hlutu Þóroddur ehf. vegna uppbyggingar seiðaeldisstöðvar í Tálknafirði, JE-Vélaverkstæði ehf. Siglufirði, vegna þróunar á nýrri gerð af snekkju, Vélfag ehf. Ólafsfirði, þróun og smíði roðvélar, 5 milljónir hvert verkefni.
Við mat á umsóknum var einkum tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, nýsköpunargildis, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa.
Byggðastofnun mun gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi, á árunum2008 og 2009.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Elín Þórðardóttir og Sigríður Þorgrímsdóttir sérfræðingar á þróunarsviði Byggðastofnunar. 
Byggðastofnun sendir styrkþegum staðfestingarbréf, og í framhaldi af því mun stofnunin senda forsvarsmönnum viðkomandi verkefna samning til undirritunar.

Heildarlisti yfir úthlutanir

Frétt fengin af vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is