Móttaka reikninga frá og með 1. maí 2023

Móttaka reikninga frá og með 1. maí 2023

Eins og áður hefur komið fram á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, verður frá og með 1. maí 2023 eingöngu tekið á móti reikningum með rafrænum hætti hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess.

Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.

Mælt er með að söluaðilar gefi út rafræna reikninga í sínum sölukerfum og miðli í gegnum skeytamiðlara.

Aðilar sem ekki hafa rafrænt reikningakerfi geta sent sveitarfélaginu reikning á rafrænu formi sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins. Smellt er á hnappinn "Rafrænir reikningar" á forsíðu og fyllt út form sem upp kemur.

Pappírsreikningar sem eru útgefnir frá og með 1. maí 2023 munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.