Mistök við prentun hitaveitureikninga

Vegna mistaka þá voru reikningar frá Hitaveitu Dalvíkur sendir tvisvar í prentun þessi mánaðarmótin. Notendur veitunnar fá því tvo nákvæmlega eins greiðsluseðla senda heim í dag.


Mistökin áttu sér einungis stað í prentuninni sjálfri, ekki í myndun krafna, og því er engin hætta á að hægt sé að að borga báða greiðsluseðlana.


Hitaveita Dalvíkur biður alla notendur sína afsökunar vegna mistakanna