Mín Dalvíkurbyggð – Þjónusta allan sólarhringinn

Mín Dalvíkurbyggð – Þjónusta allan sólarhringinn

Íbúagáttin Mín Dalvíkurbyggð hefur nú verið starfrækt í rúmt ár en vorið 2013 var opnað fyrir aðgang íbúa Dalvíkurbyggðar og viðskiptavina sveitarfélagsins að gáttinni. Íbúagáttin er viðbót við þá þjónustu sem þegar er veitt á heimasíðunni www.dalvikurbyggd.is .

Með tilkomu íbúagáttarinnar steig Dalvíkurbyggð stórt og mikilvægt skref í rafrænni þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Markmið sveitarfélagsins er skilvirk og ábyrg stjórnsýsla og er íbúagáttinn ein varðan á leiðinni að settu marki hvað varðar enn skilvirkari stjórnsýsluhætti og þjónustu.

Segja má að með íbúagáttinni séu íbúar Dalvíkurbyggðar komnir í beint samband við sína Dalvíkurbyggð því nú geta þeir með rafrænum hætti sótt um þjónustu til sveitarfélagsins, fylgst með framgangi sinna mála, skoðað reikninga og greiðslustöðu, upplýsingasíðu Hitaveitu Dalvíkur, sótt um í ÆskuRækt, komið ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira- allt á einum stað.

Með tilkomu Mín Dalvíkurbyggð er einnig hægt að minnka öll pappírsviðskipti þar sem nú er hægt, á einfaldan hátt, að sækja yfirlit og reikninga rafrænt. Þannig getum við minnkað pappírskostnað og lagt okkar af mörkum til umhverfismála.

Vinsamlegast athugið að þeir sem eru enn að fá senda reikninga á pappír geta nálgast þá á Mín Dalvíkurbyggð. Þeir sem óska eftir því að hætta að fá senda reikninga á pappír eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900. Greiðsluseðlar / kröfur birtast engu að síðu enn sem fyrr í heimabönkum.

Á heimasíðu Dalvíkurbyggðar er hnappurinn Mín Dalvíkurbyggð en með því að smella á hann færist notandi inn á innskráningarsíðu íbúagáttar. Innskráning er með Íslykli frá island.is, en það er samræmt innskráningarkerfi fyrir hið opinbera.

Íbúar Dalvíkurbyggðar og viðskiptavinir sveitarfélagsins eru hvattir til að kynna sér gáttina og hvaða möguleika hún hefur uppá að bjóða. Á flipanum Hjálp eru algengar spurningar og svör. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar ef um frekari spurningar er að ræða á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, eða í síma 460-4900 milli kl. 8:00 og kl. 16:00 alla virka daga. Þar er einnig staðsett tölva sem notendur geta nýtt sér og fengið aðstoð við að komast inn í Mín Dalvíkurbyggð.