Mín Dalvíkurbyggð – Þjónusta allan sólarhringinn

Í vor var opnað fyrir aðgang íbúa Dalvíkurbyggðar og viðskiptavina sveitarfélagsins inn á svokallaða íbúagátt á vef Dalvíkurbyggðar en íbúagáttin er viðbót við þá þjónustu sem þegar er veitt inn á vefsvæðinu Mín Dalvíkurbyggð.

Með tilkomu íbúagáttarinnar hefur Dalvíkurbyggð stigið stórt og mikilvægt skref í rafrænni þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Markmið sveitarfélagsins er skilvirk og ábyrg stjórnsýsla og er íbúagáttinn ein varðan á leiðinni að settu marki hvað varðar enn skilvirkari stjórnsýsluhætti. Segja má að með íbúagáttinni séu íbúar Dalvíkurbyggðar komnir í beint samband við sína Dalvíkurbyggð því nú geta þeir með rafrænum hætti sótt um þjónustu til sveitarfélagsins, fylgst með framgangi sinna mála, skoðað reikninga og greiðslustöðu, komið ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira- allt á einum stað.

Þá er bein tenging inn á Mentor fyrir þá sem eiga börn í leik- og grunnskólum, tenging inn á skráningarkerfi fyrir tómstundir og íþróttir barna, ÆskuRækt.

Hitaveita Dalvíkur er nú komin inn í Mín Dalvíkurbyggð en þar hafa notendur beinan aðgang inná upplýsingasíður Hitaveitunnar. Vinsamlegast athugið að framvegis munu reikningar Hitaveitunnar birtast þar inni en ekki í heimabanka.

Álestur hitaveitu fer samt sem áður fram í gegnum heimasíðu Dalvíkurbyggðar eins og verið hefur. Þar sem nýjir orkumælar hafa verið settir upp ber að tilkynna álestur í kílóvattstundum (kwh), gluggi 1 á orkumæli, og í rúmmetrum (m3), glugga 3 á orkumæli. Sjá nánar á skýringarblaði sem dreift var með nýjum orkumælum.

Á heimasíðu Dalvíkurbyggðar er hnappurinn Mín Dalvíkurbyggð en með því að smella á hann færist notandi inn á innskráningarsíðu íbúagáttar. Innskráning er með Íslykli frá island.is, en það er samræmt innskráningarkerfi fyrir hið opinbera.

Íbúar Dalvíkurbyggðar og viðskiptavinir sveitarfélagsins eru hvattir til að kynna sér gáttina og hvaða möguleika hún hefur uppá að bjóða. Á flipanum Hjálp eru algengar spurningar og svör. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar ef um frekari spurningar er að ræða á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is , eða í síma 460-4900 milli kl. 8:00 og kl. 16:00 alla virka daga. Þar er einnig staðsett tölva sem notendur geta nýtt sér og fengið aðstoð við að komast inn í Mín Dalvíkurbyggð.

Sérstök athygli er vakin á því að frá og með næstu mánaðarmótum sendir Dalvíkurbyggð ekki út reikninga á pappír. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta haft samband við þjónustuver og óskað eftir að fá reikninga senda áfram á pappír. Þó skal tekið fram að kröfur/greiðsluseðlar myndast sem fyrr í heimabanka.