Miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla í dag

Þriðja miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla verður 11. júní. Mæting er við Olís klukkan 17:15. Gengið verður eftir merktri gönguleið að fuglaskoðunarhúsinu við Hrísatjörn. Leiðsögumaður í ferðinni verður Atli Dagsson.

Ferðin er án endurgjalds og við hæfi allrar fjölskyldunnar.

ALLIR VELKOMNIR.