Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar

Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2016. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. mars nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð/umsóknir“. Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Slóðir fyrir Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er hægt að finna inn á „Umsóknir“ á Mín Dalvíkurbyggð.

Styrkþegar ársins 2015 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2016.

Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs