Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar

Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2015. Umsóknir þurfa að berast fyrir 22. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð“ Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www. dalvikurbyggd.is.


Styrkþegar ársins 2014 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.


Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2015.


Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs