Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.

Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2007 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Áhersla á vetrartímann (vetrarmenningu og vetrarlist)
  • Samstarf yfir vetrartímann milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað
  • Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs
  • Skapandi starf fyrir börn og unglinga

Umsóknarfrestur er til og með 31. október.  Úthlutun fer fram í nóvember. Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá Menningarfulltrúa Eyþings Strandgötu  29, 3. hæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277  eða á netfangið menning@eything.is

Í tengslum við úthlutunina verður menningarfulltrúi með viðtalstíma á eftirtöldum stöðum.

Húsavík    11. október  kl. 9-11 á skrifstofu Norðurþings
Kópaskeri  11. október kl. 13-14 á þjónustuskrifustofu Norðurþings
Raufarhöfn  11. október kl. 15-16 á þjónustuskrifstofu Norðurþings
Langanesbyggð   12. október  kl. 13-14  á skrifstofu Langanesbyggðar Fjarðarvegi 3, Þórshöfn
Mývatnssveit   15. október  kl. 15-16  Hótel Reynihlíð
Laugum  15. október  kl. 10-11 á  skrifstofu Þingeyjarsveitar
Siglufirði  17. október kl.  13-14 á Bæjarskrifstofu Siglufjarðar
Ólafsfirði  17. október kl. 10-11 á Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Grenivík  18. október  kl. 10-11 í Gamla skólanum Grenivík
Dalvík   23. október  kl. 10-12 Ráðhúsinu Dalvík
Akureyri   22. og 23. október  kl. 13-17 á skrifstofu menningarfulltrúa Strandgötu 29, 3. hæð
Grímsey  24. október kl. 20-22 á sveitarstjórnarskrifstofu

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi