Menningarráð Eyþings auglýsir stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála (styrkir sem Alþingi veitti áður)

Menningarráð Eyþings auglýsir nú í þriðja sinn eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki á grundvelli viðauka menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við Eyþing.

Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2014.

Við úthlutun ársins 2014 hefur menningarráð ákveðið að líta frekar til þeirra umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs
  • Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi
  • Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á síðu Eyþings www.eything.is undir Styrkir eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs vegna stofn- og rekstrarstyrkja.

Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2013. Úthlutun verður í febrúar með fyrirvara um samþykki alþingis.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is