Menningarmessa í Svarfaðardalnum

Menningarmessa í Svarfaðardalnum
Frá Menningarmessunni að Rimum.

Í gær, sunnudaginn 15. október, var haldin svokölluð Menningarmessa að Rimum í Svarfaðardal. Þar voru saman komin félög og félagasamtök úr Dalvíkurbyggð sem kynntu starfssemi sína fyrir gestum og gangandi. Margt fólk lagði leið sína í Svarfaðardalinn og kynnti sér starfsemi félaganna sem og gæddi sér á ljúffengum veitingum að Húsabakka. Framfarafélag Dalvíkurbyggðar stóð fyrir samkomunni og er áætlað að halda messuna árlega héðan í frá. Myndir frá Menningarmessunni má finna hér til vinstri, undir myndasafn.