Menningarhúsið tekur á sig mynd

Menningarhúsið tekur á sig mynd

Menningarhúsið sem Sparisjóður Svarfdæla er að láta byggja sem gjöf til Dalvíkurbyggðar er óðum að taka á sig mynd. Byrjað er að klæða útveggina með steinflísum og glerið komið í að mestum hluta að framanverðu. Innan dyra verður starfsemi Bókasafns Dalvíkur, upplýsingamiðstöð og salur fyrir tónlistar- og myndlistarviðburði. Stefnt er að því að vígja húsið á vormánuðum 2009.