Menningarhúsið Berg: Verkefnastjóri menningarhúss
Menningarhúsið Berg auglýsir eftir verkefnastjóra í tímabundið starf út árið 2026 er að ræða, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 50% stöðuhlutfall og skiptist vinnutími í undirbúningsvinnu á skrifstofu tíma annarsvegar og hins vegar með viðveru og umsjón á viðburðum hússins einstaka kvöld og helgar. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs og mun starfsmaður vinna í nánu samstarfi með honum og öðrum starfsmönnum safnanna.
Menningarhúsið Berg er staðsett í hjarta Dalvíkur. Þar er bókasafn, fjölnota salur og starfandi veitingahús. Starfsemi Menningarhússins er fjölbreytt, þar eru haldnir t.d. tónleikar, myndlistarsýningar, fundir, ráðstefnur, veislur, námskeið, smiðjur, fyrirlestrar og margt fleira.
Helstu verkefni:
- Skipulagning dagskrár í Menningarhúsinu Bergi (auk tilfallandi viðburða á bókasafni)
- Utanumhald um viðburði
- Hugmyndavinna og skipulagning
- Bókanir fyrir veislur/viðburði/sýningar og samskipti við listamenn, leigjendur og viðburðarhaldara.
- Markaðssetning á Menningarhúsinu Bergi.
- Styrkumsóknir og samstarf við ýmsa ferða- og þjónustuaðila á svæðinu.
- Undirbúningur og frágangur fyrir viðburði og útleigu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking af sambærilegum störfum er æskileg
- Góð færni á markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla er mikill kostur
- Sjálfstæði, sveigjanleiki og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð færni í íslensku í máli og riti, æskilegt er að viðkomandi geti tjáð sig í máli og riti á ensku
Umsóknarfrestur er til 16. júní 2026
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs Dominique Sigrúnardóttir dominique@dalvikurbyggd.is. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).