Menningar - og viðurkenningarsjóður KEA

KEA hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð félagsins og tekur styrkúthlutunin til tveggja flokka: Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í flokki þátttökuverkefna er horft til stærri verkefna á sviði menningamála á félagssvæði KEA.
Umsóknarfrestur er til 19. nóvember.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.kea.is