Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar-og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2026. Umsóknir þurfa að berast til og með 22. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „ þjónustugátt “. Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Slóðir fyrir Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er hægt að finna hér.
Styrkþegar ársins 2025 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.
Verkefni sem fá styrk úr sjóðnum, skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2026.
Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs Gísli Bjarnson gisli@dalvikurbyggd.is