Menningar- og viðurkenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Menningar- og viðurkenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar-og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2023.
Umsóknirfrestur er til og með 15. mars nk. Sótt er um með þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð/umsóknir“. Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. 

Menningarstefna Dalvíkurbyggðar

Úthlutunarreglur sjóðsins

Styrkþegar ársins 2022 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2023.

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs Gísli Bjarnson s. 4604900 gisli@dalvikurbyggd.is