Menningar- og viðurkenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Menningar- og viðurkenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar- og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2022.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. mars nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á „Mín Dalvíkurbyggð/umsóknir“.
Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Slóðir fyrir Menningarstefnuna og reglur sjóðsins er hægt að finna inn á „Umsóknir“ á Mín Dalvíkurbyggð.

Styrkþegar ársins 2021 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki til skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2022.

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs, Gísli Bjarnason, í s. 4604900 og á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is