Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar-og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2025.
Umsóknir þurfa að berast til og með 28. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum, inn á
„ þjónustugátt “ Dalvíkurbyggðar. Við úthlutun er m.a. tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins. Við hvetjum umsækjendur til þess að kynna sér menningarstefnuna og reglur sjóðsins.
Styrkþegar ársins 2024 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.
Verkefni sem fá styrk úr sjóðnum, skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2025.
Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs Gísli Bjarnson s. 4604900 gisli@dalvikurbyggd.is