Menningar - og listasmiðjan að hefja vetrarstarfið

Menningar - og listasmiðjan að hefja vetrarstarfið

Starfsemi í Menningar - og listasmiðjunni á Húsabakka hefst á morgun, þriðjudaginn 22. september. Í vetur verður opið eins og áður á þriðjudagskvöldum frá kl. 19:00-22:00 og á fimmtudögum frá kl. 14:00-22:00.

Prjónakaffi verður á fimmtudaginn 24. september og þá verður boðið upp á vöfflur með kaffinu. Næsta prjónakaffi verður svo þriðjudagskvöldið 20. október.

Fyrsta námskeið vetrarins er prjónanámskeið og er hægt að skrá sig í síma 868 4932. Kennari verður Jóhanna Skaftadóttir.

Einnig verða námskeið í taulitun og tauþrykki og þegar líður að jólum er ætlunin að bjóð aupp á námskeið í konfektgerð.