Menningar og listasmiðjan að hefja vetrarstarf sitt

Menningar og listasmiðjan að hefja vetrarstarf sitt

Nú er starfsemi að hefjast að nýju í Menningar og listasmiðjunni eftir sumarfrí. Opið verður öll þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 19:00-22:00
og síðan annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 13:00-15:30 (s.s. 10.okt. 14.nóv.og 12. des.)

Fyrsta prjónakaffi vetrarins verður fimmtudagskvöldið 11. október og síðan þriðja hvert fimmtudagskvöld í vetur.

Í Menningar og listasmiðjunni á Húsabakka fögnum við öllum sem koma og nýta sér aðstöðuna sem þar er. Þeir sem koma til að skoða blöð og spjalla eru jafn velkomnir og þeir sem koma til að nota tól eða tæki á staðnum. Aðgangseyrir kr. 300,-