Matthildur Freyja 5 ára

Matthildur Freyja 5 ára

Á sunnudaginn, 22. apríl, varð Matthildur Freyja 5 ára. Við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum á föstudaginn. Hún bjó sér til glæsilega kórónu, flaggaði íslenska fánanum, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni og var þjónn í hádeginu. Svo var að sjálfsögðu sungið fyrir hana í tilefni dagsins. Við óskum Matthildi Freyju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju.