Markús Máni 5 ára

Markús Máni 5 ára

Föstudaginn 27. maí verður Markús Máni 5 ára. Hann verður ekki í leikskólanum næstu vikurnar svo það var haldið upp á afmælið hans í dag. Af þessu tilefni bjó hann sér til myndarlega afmæliskórónu, var þjónn í hádeginu, flaggaði íslenska fánanum ásamt Anítu afmælisbarni dagsins. Hann bauð börnunum líka upp á ávaxtaspjót í ávaxtastund, ásamt hinum afmælisbörnum maímánaðar. Við óskum Markúsi Mána og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.