Markaðsstofa Norðurlands boðar til svæðissúpufund um ferðamál á Norðurlandi í næstu viku


Fyrsti fundurinn verður haldinn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík mánudaginn 15 október fyrir Eyjafjarðarsvæðið.
Annar fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Pottinum á Blönduósi þriðjudaginn 16 október fyrir Skagafjörð og Húnavatnssýslur
Þriðji fundurinn verður haldinn í Skúlagarði í Öxarfirði miðvikudaginn 17 október fyrir Þingeyjasýslurnar.

ALLIR FUNDIRNIR HEFJAST kl: 17:00 og við stefnum á að ljúka fundunum um kl: 20:00.
Markaðsstofa Norðurlands mun bjóða upp á súpu og brauð á fundinum.
Fundarstjóri verður Áskell Heiðar Ásgeirsson Landfræðingur.

Tilgangur fundanna er að kynna starfsemi Markaðsstofunnar á árinu, þ.á.m. vinnu okkar við samfélagsmiðlanna, heimasíðuna, Ísland er meðetta, flugklasann Air66N, veturinn framundan auk ýmissa annarra mála sem við höfum verið að vinna að. s.s, blaðamannaferðir, boðsferðir fyrir ferðaheildsala, kynningar og sýningar innanlands og erlendis.

Að lokinni kynningunni viljum við kalla eftir umræðum um þessi mál en ekki síður YKKAR áherslum og ábendingum vegna stefnumótunar fyrir næsta ár og verkefni sem þið viljið leggja áherslu á á komandi vetri og á næsta ári.

Það eru ALLIR velkomnir á fundina og við hvetjum sveitarstjórnafólk sérstaklega til að mæta til að taka þátt í umræðum.

Skráning á fundina er hjá Maríu Axfjörð ( maria@nordurland.is  ) til að vita ca fjölda vegna súpunnar.

Með von um að sjá ykkur sem flest.
Kær kveðja
Starfsfólk Markaðsstofu Norðurlands.