Markaðir, sýningar, jólatónleikar og bingó um helgina

Það verður margt um að vera í Dalvíkurbyggð þessa fyrstu helgi í aðventu.

Laugardaginn 26. nóvember er ýmislegt í gangi

Jólamarkaður á Skeiði í Svarfaðardal kl. 14:00-17:00.
Markaður í gamla bakaríinu á vegum Adda Sím og Svölu. Opið frá kl. 11:00-17:00.
Markaður í Gimili. Opið frá kl. 11:00-17:00.

Þá verður sýningin „Friðland fuglanna“ á Húsabakka opin gestum og gangandi frá kl. 14:00-18:00. Aðgangur er ókeypir og leiðsögn á staðnum. Allir velkomnir, börn og fullorðnir. Upplagt að koma við á Húsabakka á leiðinni á jólamarkaðinn á Skeiði eða á heimleiðinni. Á öðrum tímum er sýningin opnuð eftir hentugleikum. Hafið samband í síma 861 8884.

Sunnudaginn 27. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður einnig margt um að vera

Jólamarkaður á Skeiði í Svarfaðardal kl. 14:00-17:00.
Markaður í gamla bakaríinu á vegum Adda Sím og Svölu. Opið frá kl. 11:00-17:00.
Markaður í Gimili. Opið frá kl. 11:00-17:00.

Menningarhúsið Berg opnar kl. 14:00 í jólabúningi með aðventu- og jólastemmningu. Kveikt verður á jólatrjám og jólasýning opnar. Handverksmarkaður í anddyrinu frá kl. 14:00-17:00. Kaffihúsið verður með jólasmákökur, heimagert konfekt, heitt súkkulaði og kaffidrykki í jólafötunum.

Salka kvennakór verður með jólatónleika sýna þenna dag kl.15:00 í Dalvíkurkirkju. Á efnisskrá verða innlend og erlend jólalög við íslenska texta. Kórinn býður gestum sínum að þiggja aðventukaffi í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum. Miðaverð er kr. 2.000.- í forsölu en kr. 2.500.- við innganginn. Miða er hægt að nálgast hjá kórfélögum.


Hið árlega jólabingó Hvatar verður í félagsheimilinu Árskógi kl. 13:00. Spjaldið kostar 500 kr. og veglegir vinningar eru í boði. Seldar verða veitingar. Takið með ykkur gesti og skemmtum okkur vel saman.


Einnig verður helgistund í Stærri-Árskógskirkju kl. 20:00 og þá verður einnig kveikt á leiðarlýsingu.