Mannauðs- og launafulltrúi óskast.

Mannauðs- og launafulltrúi óskast.

Dalvíkurbyggð leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf mannauðs- og launafulltrúa á fjármála- og stjórnsýslusviði. Starf mannauðs- og launafulltrúa er hluti af mannauðsteymi sveitarfélagsins.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Launavinnsla, frágangur launa og launaröðun skv. kjara- og ráðningarsamningum.
  • Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál.
  • Gerð launaáætlana.
  • Umsjón og utanumhald í tengslum við starfsmannakerfi og upplýsingar.
  • Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda.
  • Seta í starfs- og kjaranefnd Dalvíkurbyggðar.
  • Þátttaka í stefnumótun.
  • Ýmis önnur verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking og haldbær reynsla af launavinnslu og sambærilegum störfum.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni skilyrði, s.s. Excel.
  • Víðtæk þekking og reynsla af launa- og mannauðskerfum og Vinnustund er kostur.
  • Hæfni til að greina gögn og upplýsingar.
  • Skipulagsfærni, nákvæm vinnubrögð og árverkni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Metnaður til árangurs og jákvæðni.
  • Gott vald á íslensku og færni til að sjá sig í ræðu og riti.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2025.

 

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk staðfestra afrita af prófskírteinum, sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir, sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir, telma@mognum.is