Mannabreytingar í stjórn

Aðalfundur Náttúrusetursins á Húsabakka var haldinn að Rimum í gær. Breytingar urðu á stjórn félagsins á fundinum. Haukur Snorrason og Jóhann Ólafsson gengu út úr aðalstjórninni en inn komu þær Valdís Guðbrandsdóttir og Þóra Gunnsteinsdóttir. Trausti Þórisson situr áfram í stjórninni. Þá kom Björn Friðþjófsson nýr inn í varastjórn en annar varamaður er Jónas Pétursson. Fjárskortur háir Náttúrusetrinu verulega um þessar mundir og mun framkvæmdastjóri fara í frí nú um mánaðamótin þar til úr rætist.