Málverkasýning í Bergi menningarhúsi

Málverkasýning í Bergi menningarhúsi

Hugrún Marinósdóttir heldur nú sína fyrstu málverkasýningu í Bergi menningarhúsi á Dalvík. Hugrún er innfæddur Dalvíkingur sem hefur lagt stund á myndlistanám um árabil. Á sýningunni er 26 verk, að stærstum hluta olíuverk.

Myndirnar eru bjartar og tærar og fallegt samspil ljóss og skugga gefa myndum ferskt yfirbragð. Myndefnið er fjölbreytt; landslag, fólk, dýr og blóm birtast á lifandi og glaðlegan máta þannig að gestir yfirgefa sýninguna með bros á vör.

Sýningin opnaði 4. júlí og stendur fram til 4. ágúst og er opin á opnunartíma hússins.