Málþing um lífrænan landbúnað

Málþing um Lífrænan landbúnað í Dalvíkurskóla laugardaginn 18. október klukkan 15:00.

Sparnaður í aðföngum - hærra afurðaverð – jákvæð ímynd – aukin vörugæði
 
Stjórnandi; Freyr Antonsson
 
Framsöguerindi:
 
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands.
 Skilyrði fyrir lífrænan landbúnað á Íslandi með tilliti til frjósemi jarðvegs, loftslags, velferð búfjár og búgreina. Hvaða stuðning geta bændur fengið í aðlögunarferlinu? 
 
Gunnar Á. Gunnarsson frá vottunarstofunni Tún.
Lífræn framleiðsla, frá hugmynd til vottunar. Hver er hagur bænda af lífrænni vottun?
 
Helga Þórðardóttir, sauðfjárbóndi á Mælifellsá í Skagafirði.
Reynsla starfandi bónda með vottaða lífræna ræktun.
 
Anna Dóra Hermannsdóttir, yogakennari á Klængshóli í Skíðadal.
Ferðamennska og áhrif vottunar jarðarinnar á starfsemina. Hinn meinti munur á hollustu afurða hefðbundins landbúnaðar og hins lífræna.
 
Pallborð eftir framsöguerindi.
Stjórnandi; Jóhann Ólafsson