Málefni Húsabakka rædd á fundi í kvöld

Í kvöld, fimmtudagskvöld, verður haldinn fundur um málefni Húsabakka en fundurinn er framhald af þeirri vinnu sem átt hefur sér stað frá Íbúaþingi sem haldið var í október á síðasta ári. Í nóvember var haldinn samskonar fundur og var þar m.a. rætt um setur tengt náttúru, útivist, sögu og menningu. Íbúar Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að mæta á fundinn en hann hefst klukkan 20:30 að Rimum.