Lýðræðisvika sveitarfélaga

European Week of Local Democracy (EWLD), eða lýðræðisvika sveitarfélaga er nýr árlegur viðburður sem sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins beitir sér fyrir að evrópsk sveitarfélög taki þátt í. Markmiðið er að auka þekkingu íbúa á staðbundnu lýðræði og stuðla að aukinni þátttöku þeirra. Lagt var til að sveitarfélög veldu vikuna í kringum 15 október til að skipuleggja viðburði með íbúum sínum. Sú dagsetning var valin vegna þess að Evrópusáttmáli um sjálfstjórn sveitarfélaga, sem Ísland hefur fullgilt, var opnaður til undirritunar á þeim degi árið 1985.

 
Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar ákvað af þessu tilefni að efna til kynninga á ýmsum viðfangsefnum sveitarfélagsins þann 18. október nk. kl. 14 – 17 í Dalvíkurskóla. Einnig var ákveðið að halda á sama tíma málþing um lífræna ræktun.
 
Eftirfarandi kynningar og málþing verða í skólanum á þessum tíma:
 
Aðalskipulag. Kynning verður frá kl. 14 á tillögum að nýju aðalskipulagi fyrir Dalvíkurbyggð en umhverfisráð hefur unnið að því undanfarin misseri.
 
Íþróttahús. Sýndar verða teikningar af nýju íþróttahúsi. Byggingarnefnd íþróttahúss og fulltrúi verktaka kynna verkefnið frá kl. 14. Einnig verða kynnt framtíðaráform um íþróttasvæði og nýtingu Víkurrastar.
 
Mannréttindastefna. Félagsmálaráð hefur undanfarið unnið að mannréttindastefnu Dalvíkurbyggðar. Fulltrúar úr ráðinu munu kynna stefnuna kl. 14.30 og ræða málin.          
 
Ungmennaráð. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi mun kynna starfsemi ungmennaráða kl. 16 og ræða við gesti um hugsanleg viðfangsefni slíkra ráða.
 
Málþing um lífræna ræktun. Málþingið er í umsjón Helgu Írisar Ingólfsdóttur, fulltrúa á umhverfissviði og Freys Antonssonar upplýsingafulltrúa frá kl. 15 – 17. Málþingið er auglýst sérstaklega.
 
Þetta er tækifæri fyrir alla sem vilja kynna sér einhver þau verkefni sem unnið er að í sveitarfélaginu og til að koma á framfæri hugmyndum eða áthugasemdum. Bæði bæjarfulltrúar og nefndamenn viðeigandi fagnefnda verða á staðnum til að kynna verkefnin og eiga skoðanaskipti við ykkur. Það er því gott tilefni til að koma saman í Dalvíkurskóla á laugardaginn bæði til að kynna sér nýmæli í sveitarfélaginu og áform til framtíðar og til að setjast niður með kaffibolla og ræða málin.
 
                                                                        Bæjarstjórn Dalvíkubyggðar