Lokun á heitavatni vegna viðgerða í sundlaug

Mánudagsmorgunn 7. júní kl. 08:00 verður heita vatnið tekið af við Svarfðarbraut suður frá Mímisvegi. Einnig verður það tekið af í Ásgarði, Árgerði, Böggvisstöðum, Hrafnsstöðum og Hrafnsstaðakoti. Lokunin er vegna viðgerða í Sundlaug Dalvíkur og mun standa eitthvað fram eftir degi.