Lokanir miðvikudaginn 8. febrúar

Lokanir miðvikudaginn 8. febrúar

Gert er ráð fyrir lokunum víða á Dalvík í dag og fram á nótt. 

Í nótt verður reynt að klára þær upptökur sem eftir eru en það kallar á lokanir í Böggvisbraut, Hafnarbraut og við Flæðaveg.
Ekki er komin nákvæm tímasetning á þessar lokanir en takmarkanir verða í Hafnarbraut frá kl. 15 í dag.
Frekari upplýsingar veitir Silja Dröfn Jónsdóttir í síma 460-4900 eða í tölvupósti á netfanginu silja@dalvikurbyggd.is

Á meðfylgjandi mynd má sjá um hvaða götur ræðir.