Lokað í Sundlaug Dalvíkur

Minnt er á að hægt er að leigja Sundskála Svarfdæla, meðan lokað er í Sundlaug Dalvíkur þá gilda aðgangskort þar í sundskálann.

Við vonum að gestir sundlaugarinnar sýni okkur þolinmæði og biðlund meðan á lokun stendur en hún er óhjákvæmilegur þáttur í því að betrumbæta aðstöðu og gera mannvirkið og starfsfólkið betur undir það búið að veita gestum okkar sem besta þjónustu.

Frekari upplýsingar á meðan lokun stendur er að fá hjá Símoni Ellertssyni í síma 892-5024. Ekki er víst að alltaf náist á starfsfólkinu þessa daga en sími sundlaugarinnar er 466-3233.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi - starfsfólk sundlaugar.