Lóðasláttur

Ellilífeyrisþegum og öryrkjum gefst kostur á slætti á lóðum sínum í sumar. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir þessari vinnu og er gjaldið niðurgreitt af Dalvíkurbyggð. (Athugið að einungis er um slátt að ræða, ekki beðahreinsun)

Þeir sem óska eftir þessari þjónustu geta nú pantað hana í Þjónustuveri Dalvíkurbyggðar Ráðhúsinu eða í síma 460 4900 eða hjá Vinnsukólanum í síma 466 1224/ 864 0013.


Vinnuskólinn